Sjálfstæðismenn í Kópavogi munu funda um eftirmann Gunnars I. Birgissonar í embætti bæjarstóra Kópavogs í dag. Gert er ráð fyrir að Gunnar víki sem bæjarstjóri en sitji áfram í bæjarstjórn. Þetta kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins.
Gunnsteinn Sigurðsson, skipar annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, en hann hefur sagt óljóst hver taki við embættinu af Gunnari.