Svæðisfélag Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Skagafirði hefur sent frá sér ályktun þar sem segir að endurreisn íslensks samfélags brýnni en aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þá er minnt á samþykktir og yfirlýsingar flokksins fyrir nýliðnar alþingiskosningar þar sem Evrópusambandsaðild er alfarið hafnað.
Ályktunin fer í heild sinni hér á eftir:
„Félag vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Skagafirði minnir á samþykktir flokksins og yfirlýsingar fyrir nýliðnar alþingiskosningar þar sem alfarið er hafnað Evrópusambandsaðild og ítrekað að hagsmunum Íslendinga sé best borgið utan sambandsins.
VG er eini flokkurinn sem á sæti á alþingi sem hefur frá upphafi talað skýrt í þessum efnum. Því skorar félagið á þingflokk VG að beita sér gegn því að frekari skref verði stigin í átt til Evrópusambandsaðildar og hafna þingsályktunartillögu Samfylkingarinnar um aðildarviðræður.
Á þeim mánuðum sem liðnir eru frá hruni íslensks efnahagslífs hafa alþingismenn og stjórnvöld nú þegar sóað of miklum tíma og orku í umræðu um Evrópusambandsaðild og hefur það komið niður á öðrum og brýnni verkefnum til samfélagslegrar endurreisnar.
Á sama tíma og til stendur að fara í sársaukafullan niðurskurð á fjárveitingum til grunnstoða íslensks samfélags og velferðarþjónustu skýtur það skökku við ef hluti fjármuna sem þannig eru sparaðir verða notaðir til að fjármagna mjög kostnaðarsamar aðildarviðræður."