Niðurstaða fundar fulltrúaráðs Sjálfstæðismanna í Kópavogi í kvöld var sú að fela Gunnari Birgissyni, bæjarstjóra, og bæjarfulltrúum flokksins að ræða við Framsóknarflokkinn um möguleika á áframhaldandi samstarfi flokkanna út kjörtímabilið. Visað var til farsæls samstarfs flokkanna.
Nýr fulltrúaráðsfundur verði þá boðaður þegar niðurstaða er fengin í þeim viðræðum.
Gunnar segir, að boð hans um að stíga til hliðar sem bæjarstjóri geti staðið þótt aðstæður hafi breyst og málið skýrst.
Gunnar fékk mikinn stuðning á fundinum í kvöld. Boðað var til fundarins til að ræða stöðu mála eftir að Framsóknarflokkurinn krafðist þess í síðustu viku að Gunnar viki vegna upplýsinga, sem komu fram um viðskipti Kópavogsbæjar við fyrirtæki dóttur hans, Frjálsa miðlun.