Ný víkingamynd í leikstjórn Baltasars Kormáks verður tekin upp að hluta við gamla bæjarstæðið Horn undir hlíðum Vestrahorns. Þetta kemur fram á vef Hornarfjarðar.
Þar segir að líklegt sé að fleiri tökustaðir verði valdir í nágrenni Hafnar en málið sé í skoðun.
„Framkvæmdir að Horni eru unnar í samráði
við Sveitarfélagið Hornafjörð, Fornleifavernd Ríkisins
og Umhverfisstofnun en ekki verður um neinn uppgröft á jarðvegi að ræða. Allar
framkvæmdir miðast við að vera afturkræfar og malapúðar lagðir undir
víkingabæinn. Ekki verður farið inn á þau svæði sem geyma fornminjar og þau
merkt sérstaklega og lokað fyrir umferð framkvæmdaraðila. Húsarústir af öðru af
steinsteyptu húsunum verður fjarlægt í samráði við Húsafriðunarnefnd og byggð
verður leikmynd í kringum það hús sem eftir stendur.
Áætlað
er að byggingartímabilið standi fram á sumar en tökur hefjast næsta vor. Má þá
búast við miklum fjölda starfsmanna og leikara í kringum tökurnar,“ segir á vef Hornarfjarðar.