Allar eignir ríkisins lagðar að veði?

Samtökin InDefence segja það álit lögmanna samtakanna, að eignir íslenska ríkisins hvar sem eru í heiminum geti verið til tryggingar skilvísri greiðslu lánasamnings Íslands og Hollands varðandi Icesave-skuldbindingarnar.

„Þetta þýðir með öðrum orðum að allar eignir íslenska ríkisins eru lagðar að veði. Samningurinn tryggir að Íslendingar geta ekki borið fyrir sig friðhelgi fullveldis kjósi Hollendingar að ganga að eignum ríkisins til fullnustu samningnum. Samningurinn kemur þannig í veg fyrir að íslenska ríkið geti varið eigur sínar í krafti fullveldis," segir í tilkynningu frá InDefence, sem segist hafa látið lögfræðinga sína fara yfir samkomulagið. Það hefur hins vegar ekki verið birt opinberlega enn.

Þá segir í tilkynningu InDefence, að samtökin hafi alvarlegar áhyggjur af ýmsum öðrum ákvæðum samningsins, m.a. rúmum vanefndarúrræðum hollenska ríkisins. Þetta þýði m.a. að hollenska ríkið geti gjaldfellt samninginn í heilu lagi, jafnvel á fyrstu sjö árum samningstímans. Takmarkað hald sé því í hinu sjö ára skjóli.

Samtökin segja einnig, að innihald samningsins feli í sér að þjóðréttarleg staða Íslands skerðist með mjög alvarlegum hætti. Í ljósi þessa hafi InDefence í hyggju að leita eftir áliti erlendra lögmanna. Þá sé ljóst, að samningurinn brjóti í bága við þau viðmið sem samninganefndir landanna þriggja voru bundnar af og komi fram í viðauka við þingsályktun Alþingis frá 5. desember 2008.

Hvetur InDefence ríkisstjórnina til að sinna skyldum sínum við borgara þessa lands og birta samninginn þingi og þjóð án tafar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka