Rússneskir ferðalangar lentu í sjálfheldu á litlum fjórhjóladrifnum bíl á óruddum vegaslóða upp við Snæfell um klukkan sex í dag. Lögreglan á Egilsstöðum kom þeim til bjargar og segir að ferðamennirnir hafi ekki áttað sig á aðstæðum.
Ferðamennirnir festu bílinn í snjó en gátu hringt úr farsíma eftir aðstoð.