ÖBÍ: Siðlaus tekjulækkun

Öryrkjabandalag Íslands mótmælir fyrirhuguðum lækkunum á tekjum.
Öryrkjabandalag Íslands mótmælir fyrirhuguðum lækkunum á tekjum. mbl.is/Ómar

Öryrkjabandalag Íslands hefur sent frá sér mótmæli vegna þeirra kjaraskerðinga sem koma fram í frumvarpi til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum. Telur Öryrkjabandalagið að þar séu lagðar auknar álögur á öryrkja í formi „lágtekjuskatts“, sem taki gildi 1. júlí næstkomandi.

Í tilkynningu frá bandalaginu segir: „Ríkisstjórn sem ætlar að slá skjaldborg um heimilin í landinu verður að gera sér grein fyrir að öryrkjar reka heimili líkt og þorri landsmanna og þurfa að taka á sig auknar byrðar vegna vaxandi kostnaðar við heimilishald. Öryrkjar eru þar að auki með aukinn lyfja- og lækniskostnað ásamt öðrum aukakostnaði sem hlýst af fötluninni eða langvarandi veikindum.

Það er ólíðandi að höggva stöðugt í sama knérunn með „lágtekjusköttum“, sem í sumum tilfellum er hærri í prósentum en væntanlegi hátekjuskattur. Minnt er á að elli- og örorkulífeyrisþegar urðu fyrir allt að 10% skerðingu á bótum almannatrygginga í janúar sl. Svo virðist sem að lífeyrisþegar verði að taka á sig hlutfallslega meiri fjárhagslegar álögur en aðrir landsmenn. Hvað varð um yfirlýsinguna um að snerta ekki tekjur undir 400 þús. kr. á mánuði? Gilda önnur lögmál um öryrkja og ellilífeyrisþega?

Bág staða þeirra sem treysta verða á hið opinbera til framfærslu er nógu erfið fyrir og því má ekki auka á þann vanda með lægri ráðstöfunartekjum. Slíkar aðgerðir leiða ekki til sparnaðar fyrir ríkið heldur verður til aukinn kostnaður í heilbrigðiskerfinu og félagsmálakerfi sveitafélaganna.

Jafnframt er það hreint siðleysi að lækka mánaðartekjur lífeyrisþega með 10 daga fyrirvara eins og nú er lagt til.

Öryrkjabandalag Íslands krefst þess að ríkisstjórnin dragi til baka þessi áform sín og leiti annarra leiða til að ná fram sparnaði í ríkisfjármálunum."


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka