Hjálparsveit skáta í Hveragerði var kölluð út á tólfta tímanum í kvöld þegar tilkynnt var um eld í skála í Reykjadal. Í skálanum voru níu ungmenni sem öll björguðust út úr skálanum.
Samkvæmt upplýsingum Slysavarnafélagsins Landsbjargar fóru tveir bílar og tvö sexhjól hjálparsveitar skáta í Hveragerði uppeftir til að aðstoða ungmennin til byggða.
Slökkviliðið í Hveragerði er líka á staðnum en erfiðlega mun ganga að slökkva eldinn vegna fjarlægðar skálans frá vegi en hann er tæpan kílómetra frá næsta vegi.