Skemmtibáturinn Ýmir fékk rækjupoka í skrúfuna í morgun vestur af Öndverðanesi, Skipstjórinn á Ými bað um aðstoð frá björgunarsveitinni Lífsbjörgu í Snæfellsbæ og fór björgunarbáturinn Björg Ými til aðstoðar.
Davíð Óli Axelsson, formaður Lífsbjargar, sagði við mbl.is að björgunarskipið hafi komið að bátnum á Skarðsvíkinni en sennilegast hafi Ýmir fengið rækjupokann í skrúfuna vestur af nesinu og rekið í austurátt inn á Skarðsvík. Það hafi þó verið lán í óláni að báturinn var kominn þetta norðarlega því annars hefði hann rekið upp í klettana.
Davíð Óli sagði, að rækupokinn hefði losnað úr skrúfu Ýmis en skrúfur bátsins virkuðu ekki. Sennilega hefði öryggi eða splitti losnað.