Nýtt Vísinda- og tækniráð skipað

Hið nýja ráð mun marka stefnu stjórnvalda í vísindum og …
Hið nýja ráð mun marka stefnu stjórnvalda í vísindum og tæknimálum. mbl.is/Heiddi

Forsætisráðherra hefur skipað nýtt Vísinda- og tækniráð til næstu þriggja ára. Ráðinu er meðal annars ætlað að marka stefnu stjórnvalda á sviði vísinda- og tæknimála en umfjöllun á hvoru sviði er undirbúin af vísindanefnd og tækninefnd.
 
Í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að í hinu nýja ráði eigi sæti Ari Kristin Jónsson, Inga Þórsdóttir, Sigríður Halldórsdóttir og Stefán Ólafsson sem tilnefnd eru af samstarfsnefnd háskólastigsins, Stefán Úlfarsson og Þórunn S. Jónsdóttir sem tilnefnd eru af Alþýðusambandi Íslands, Hilmar Bragi Janusson og Pétur Reimarsson sem tilnefndir eru af Samtökum atvinnulífsins, Guðrún Nordal sem tilnefnd er af menntamálaráðherra,Þorsteinn Ingi Sigfússon sem tilnefndur er af iðnaðarráðherra, Guðrún Þóra Gunnarsdóttir og Sveinn Margeirsson sem tilnefnd eru af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Unnur Þorsteinsdóttir sem tilnefnd er af heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, Kristín Svavarsdóttir sem tilnefnd er af umhverfisráðherra og Dagný Halldórsdóttir og Jón Bragi Bjarnason sem skipuð eru án tilnefningar.


Auk þess eiga forsætisráðherra, fjármálaráðherra, iðnaðarráðherra og menntamálaráðherra föst sæti í ráðinu og er forsætisráðherra formaður ráðsins.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert