Stjórn Samtaka iðnaðarins segir niðurskurð í vegagerð reiðarslag. Við núverandi aðstæður eigi alls ekki að hætta við allar framkvæmdir og skorar stjórnin SI á ríkisstjórnina á að taka ákvörðun sína um 12 milljarða niðurskurð til samgöngumála til endurmats.
Ályktun stjórnar Samtaka iðnaðarins, sem var út í morgun, er svohljóðandi:
„Niðurskurður í vegagerð er reiðarslag. Við núverandi aðstæður á alls ekki að hætta við allar framkvæmdir. Framkvæmdastigi á að halda í horfinu í lengstu lög. Samtök iðnaðarins telja brýnt að velja af kostgæfni verkefni sem eru mannaflsfrek og arðsöm og til þess fallin að auka samkeppnishæfni íslensk samfélags þegar fram í sækir. Skora Samtök iðnaðarins á ríkisstjórnina að taka ákvörðun sína um 12 milljarða niðurskurð til samgöngumála til endurmats.
Ríkisstjórnin hefur boðað áherslu á mannaflsfrekar framkvæmdir, en víkur nú skyndilega af þeirri braut og boðar stórfelldan niðurskurð. Eðlileg viðbrögð ábyrgrar ríkisstjórnar hefðu verið að verja áætlanir um uppbyggingu og kalla til viðbótar eftir liðsinni frá lífeyrissjóðum og öðrum fjárfestum í formi einkaframkvæmda. – Einkaframkvæmd nokkurra stórra verkefna kemur aldrei í stað almennra opinberra útboða eins og þau hafa viðgengist hérlendis um áratuga bil. Enda er viðbragðstími slíkra verkefna það langur að þeim verður ekki hrint af stað fyrr en um mitt næsta ár, svo lengi geta íslensk verktakafyrirtæki ekki beðið.
Verktakastarfsemi hvers konar hefur orðið fyrir einna mestum búsifjum í kreppunni. Tölur um gjaldþrot fyrirtækja og gríðarlegt atvinnuleysi í greininni tala þar skýrustu máli. Það er því ótrúlegt að lesa fréttir um að Vegagerðin neyðist til að hætta við allar nýframkvæmdir vegna þess að ríkisstjórnin boðar niðurskurð upp á 3,5 milljarða á þessu ári og 8,2 milljarða á því næsta til vegagerðar. Með þessu er verið að dæma fleiri fyrirtæki til gjaldþrots og enn fleira fólk til atvinnuleysis. Þúsundir manna hafa þegar misst vinnuna undanfarna mánuði hjá fyrirtækjum eins og Ístak, ÍAV, Loftorku, Hlaðbæ-Colas, Klæðningu, Hektar, Háfelli, Ásberg, Nesprýði, - öll þessi fyrirtæki þurfa skýr svör fyrir 1. júlí um verkefnin framundan. Fyrir þann dag þarf að taka ákvörðun um hvort segja þurfi upp mörg hundruð starfsmönnum til viðbótar.
Þegar mest var störfuðu 16.000 manns í mannvirkjagerð. Árum saman voru 10 til 12 þúsund manns starfandi í greininni. En nú stefnir fjöldinn í einungis 4.000. Niðurskurður er óumflýjanlegur í okkar þjóðfélagi eins og staðan er orðin, en óþolandi er að hann bitni allur á mannvirkjagreinum. Þeim byrðum verður að dreifa og þar á opinber rekstur síst að vera undanskilinn. Mikilvægt er að sú mikla aukning á samneyslu sem orðið hefur frá árinu 2001 gangi til baka og forgangsraðað verði upp á nýtt í ríkisrekstri.
Það verður að auka arðsemi, efla atvinnustarfsemi og útflutning. Styrkja verður alla innviði sem leiða til þess, hvort sem það er á sviði samganga, orkumannavirkja, fjarskipta eða annarra framkvæmda sem örva fjárfestingar í atvinnustarfsemi og efla samkeppnishæfni landsins. Hér er ábyrgð og skylda stjórnvalda ótvíræð.“