Bílvelta á Þingvallavegi

Bílvelta varð á Þingvallavegi á Mosfellsheiði skammt vestur af Gljúfrasteini á sjöunda tímanum. Ökumaðurinn var að því er virðist ekki í bílbelti og kastaðist því út úr bílnum. Hann var töluvert slasaður en þó með meðvitund þegar lögreglu og sjúkralið bar að garði. Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild Landspítala Háskólasjúkrahúss í Fossvogi.

Þingvallavegur er ekki lokaður vegna slyssins en töluverðar tafir hafa orðið á umferð vegna þess.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert