Gífurlega þung umferð er nú til Reykjavíkur, bæði um Vesturlandsveg og Suðurlandsveg. Umferðardeild lögreglunar á höfuðborgarsvæðinu segir gríðarlegan fjölda bíla vera á vegunum og að umferðin gangi hægt.
Þar sem hægast gangi mjakist bílarnir á um 30 km/klst.
Enn sem komið er hafa engin teljandi óhöpp orðið.