Tvöföldun aftar í röðinni en jarðgöng

mbl.is/Ómar

Horfur eru á að fyrr verði ráðist í gerð Vaðlaheiðarganga en tvöföldun Suðurlandsvegar.

Kristján Möller samgönguráðherra segir að framkvæmdir við Vaðlaheiðargöng og samgöngumiðstöð í Reykjavík séu nú til skoðunar því þau sæeu komin mun lengra en til dæmis áframhaldandi tvöföldun Suðurlands- og Vesturlandsvegar.

„Skipulagsmál og undirbúningur vegna Suðurlands- og Vesturlandsvegar er ekki kominn eins langt,“ segir Kristján spurður hvers vegna áherslan sé lögð á þessi tvö verkefni, en nokkur krafa hefur verið um tvöföldun Suðurlandsvegar með það fyrir augum að auka umferðaröryggi.  

Þung umferð og tilheyrandi umferðartafir voru á Suðurlandsvegi í átt að höfuðborgarsvæðinu allt frá því snemma síðdegis í gær og fram á tíunda tímann í gærkvöldi. Umferð var einnig þung á Vesturlandsvegi en tafir voru ekki nándar eins miklar. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var umferð á Suðurlandi óvenjumikil miðað við síðustu helgi í júní og líktist ástandið fremur því sem skapast á mánudegi um verslunarmannahelgi.

Einna mestu tafirnar voru milli Hveragerðis og Selfoss þar sem þessi mynd var tekin síðdegis í gær. Í umferðaröryggismati frá október 2008 kemur fram að tvöföldun Suðurlandsvegar myndi fækka slysum verulega. Í öryggismatinu kemur fram að öll banaslys á veginum árin 2002-2006 urðu við það að ökutæki úr gagnstæðri átt mættust.

Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka