Hærri hiti og minni úrkoma í júní

Tíð var almennt hagstæð í júní samkvæmt samantekt Veðurstofunnar. Hiti var yfir meðallagi um land allt, en úrkoma heldur undir meðallagi. Lengst af var hægviðrasamt og loftþrýstingur var óvenjuhár.

Meðalhiti í Reykjavík mældist 10,1 stig og er það 1,1 stigi ofan meðallags í júní. Flestir júnímánuðir þessarar aldar hafa verið mjög hlýir. Á Akureyri var meðalhitinn 9,7 stig, 0,5 stigum ofan meðallags. Á Höfn í Hornafirði var meðalhitinn 9,4 stig og er það 1,0 stigi ofan meðallags, á Hveravöllum var meðalhitinn 6,8 stig, 1,9 stigi ofan meðallags.

Úrkoma í Reykjavík mældist 29 mm og er það um 58 prósent meðalúrkomu í júní. Talsvert þurrara var í júní í fyrra. Á Akureyri mældist úrkoman í mánuðinum 16 mm og er það um 57 prósent meðalúrkomu í júní. Á Höfn í Hornafirði mældist úrkoman 46 mm.

Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 164 og er það tveimur stundum umfram meðallag.

Hæsti hiti í mánuðinum mældist á Egilsstaðaflugvelli þann 29. júní, 26,3 stig, það er nýtt hitamet fyrir þann dag. Hæsti hiti á mannaðri veðurstöð mældist sama dag á Grímsstöðum á Fjöllum, 23,8 stig.

Lægsti hiti mánaðarins mældist -5,3 stig á Gagnheiði þann 7. Lægsti hiti í byggð mældist í Miðfjarðarnesi þann 11. júní, -4,2 stig. Þar var einnig lægstur hiti á mannaðri stöð, -3,4 stig sama dag.

Loftþrýstingur var óvenjuhár. Í Reykjavík var loftþrýstingurinn nánast sá sami og í júní 1971, en í Stykkishólmi lítillega lægri en í þeim mánuði. Svipaður mánaðarþrýstingur mældist einnig 1902 og 1897 en þrýstingur í júní 1824 var nokkuð hærri.

Vindar voru hægir, ekki hefur verið jafnhægviðrasamt á sjálfvirkum stöðvum í byggð þann tíma sem meðaltöl eru til fyrir (frá og með 1996). Á mönnuðu stöðvunum hefur ekki verið hægviðrasamara síðan í júní 1963, en meðalvindhraði var þó svipaður í júní 1987 og 1982. Samanburðurinn nær aftur til 1949.

Vefur Veðurstofunnar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert