Boðað er til mótmæla vegna Icesavesamningsins á morgun, 2. júlí, klukkan 15:00 á Austurvelli og munu mótmælin standa frameftir deginum, að því er segir í tilkynningu.
Þúsundir hafa skráð sig og tekið þátt í áskorun til forseta Íslands um að samþykkja ekki Icesavesamningana á www.kjosa.is