Meirihluti landsmanna er mótfallinn Icesave samkomulaginu við Breta og Hollendinga skv. nýjum þjóðarpúlsi Gallup, að því er fram kom í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins. Sex af hverjum tíu er andvígur samkomulaginu skv. könnuninni.
RÚV segir fleiri konur andvígar samkomulaginu en karla auk þess sem stuðningur eykst við það með aldri og menntun.