Mosfellsbær mótmælir forgangsröðun í vegagerð

mbl.is/ÞÖK

Bæjarráð Mosfellsbæjar mótmælir harðlega þeirri forgangsröðun verkefna í vegagerð sem samgönguráðherra, Kristján Möller, hefur tilkynnt um.

Í bókun sem bæjarráð samþykkti í morgun og sendi samgönguráðherra og þingmönnum segir að í kjölfar ákvörðunar um niðurskurð í vegagerð, sé tvöföldun Vesturlandsvegar við Mosfellsbæ frestað sem og öðrum brýnum verkefnum á höfuðborgarsvæðinu en á sama tíma tilkynnt um að ákvörðun hafi verið tekin um að ráðast í gerð jarðganga í gegnum Vaðlaheiði.

Þá segir að tvöföldun hringtorgs og gerð hljóðmana meðfram Vesturlandsvegi, sem tilbúið er til útboðs, og átti að bjóða út í þessum mánuði ásamt tvöföldun á kaflanum frá Hafravatnsvegi að Þingvallavegi, séu afar brýnar framkvæmdir fyrir íbúa Mosfellsbæjar, sem og þá sem ferðast um þennan fjölfarna vegarkafla. Yfir sumartímann eru það 15.750 bílar á dag sem aka þennan vegakafla á Vesturlandsvegi og samsvarar það1,4 milljónum bíla á tímabilinu júní til ágúst.
 
„Vesturlandsvegur er einn hættulegasti þjóðvegur landsins og liggur hann þvert í gegnum Mosfellsbæ. Á síðustu áratugum hafa orðið fjölmörg banaslys innan bæjarmarka Mosfellsbæjar. Á þeim stutta kafla sem fresta á framkvæmdum við hafa orðið þrjú banaslys og að auki fjöldi alvarlegra slysa á kaflanum frá Álafosshringtorgi að Þingvallahringtorgi. Umferð er mjög þung á þessum kafla og umferðateppa algeng á álagstímum. Á síðustu tveimur árum hafa orðið tíu umferðaróhöpp og minniháttar slys á kaflanum frá Álafosshringtorgi að Áslandi. Að auki verða íbúar við Vesturlandsveg fyrir verulegri lífsgæðaskerðingu vegna umferðarhávaða og tafa vegna mikillar umferðar í gegnum bæinn.
 
Í ljósi þessa er ótækt að fresta framkvæmdum við hringtorg við Álafossveg og gerð hljóðmana við Vesturlandsveginn lengur en orðið er.
 
Mosfellsbær skorar á  samgönguráðherra að endurskoða ákvörðun sína um forgangsröðun verkefna í vegagerð með bætt umferðaröryggi,“ segir í bókun bæjarráðs Mosfellsbæjar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert