Talsvert ber á því að reiðhjólum sé stolið á höfuðborgarsvæðinu þessa dagana,s amkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Þrjár slíkar tilkynningar bárust lögreglu í gær og fimm í fyrradag.
Lögregla segir ekki að eitt hverfi verði meira fyrir barðinu á reiðhjólaþjófum en önnur. Reiðhjólum hafi verið stolið í miðborginni, úthverfum Reykjavíkur og nágrannasveitarfélögunum.
Vegna þessa beini lögreglan því til fólks að það gangi eins tryggilega frá reiðhjólum sínum og kostur sé á.