Lottópotturinn fjórfaldur næsta laugardag

Enginn var með allar tölurnar réttar í lottóinu í kvöld og er potturinn því fjórfaldur næsta laugardag. Má búast við því að hann verði 20 milljónir en hann er þegar kominn í rúmar fjórtán milljónir króna. Tveir skiptu bónusvinningnum á milli sín og fær hvor 219.210 krónur í sinn hlut.

Einn fékk 2 milljónir í Jókernum og var vinningsmiðinn keyptur í N1 Reykjanesbæ.

Lottótölur kvöldsins eru: 7,15, 25, 28 og 32. Bónustalan er 21.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert