Umferð í átt til höfuðborgarinnar hefur verið minni í dag en reiknað var með, samkvæmt upplýsingum lögreglu. Til þessa hefur umferð til borgarinnar verið minni en undir lok síðustu helgar og nokkurra annarra helga í vor.
Heldur meiri umferð hefur verið um Vesturlandsveg í dag en um Suðurlandsveg og hefur hraði þar verið jafn og litið um tafir.