Olís, ÓB og Atlantsolía hafa fylgt í kjölfar N1 og hækkað verð á bensíni. Kostar nú lítrinn af bensíni 185,8 krónur hjá Olís, lítrinn kostar 184,30 hjá ÓB og Atlantsolíu. Enn er bensínlítrinn ódýrastur hjá Orkunni en þar kostar lítrinn 174,10-175,20 krónur, samkvæmt vefnum GSM Bensín.