Stal DVD spilara og tölvubúnaði

Lögreglan
Lögreglan

Innbrotsþjófur er í haldi lögreglunnar á Akureyri. Hann var handtekinn á 10. tímanum í gærkvöldi eftir innbrot. Hann hafði brotist inn í íbúð í bænum og stolið þar m.a. DVD spilara og tölvubúnaði. Nágrannar veittu manninum athygli og létu lögreglu vita.

Maðurinn var handtekinn skammt frá innbrotsstaðnum og var undir áhrifum vímugjafa. Hann er hátt á þrítugsaldri og verða mál hans skoðuð síðar í dag. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert