Aðsókn að Selasetri Íslands á Hvammstanga hefur aukist mikið í sumar, að sögn Hrafnhildar Ýrar Víglundsdóttur, framkvæmdastjóra. Erlendir ferðamenn sem heimsóttu setrið í júní voru um 95% fleiri en í sama mánuði í fyrra. Innlendum ferðamönnum fækkaði hins vegar um 5% nú miðað við júní í fyrra.
Aðgangseyrir í júní s.l. skilaði 145% meira í júní s.l. en í sama mánuði í fyrra. Erlendum ferðamönnum sem heimsækja Selasetrið hefur fjölgað um 99% frá áramótum. Hrafnhildur Ýr sagði að dregið hafi úr aðsókn Íslendinga undanfarin ár. Fyrsta árið hafi þeir verið í meirihluta en fækkað ár frá ári.
Þetta er fjórða sumarið sem Selasetrið er opið. Kynningarátak sem gert var nýlega virðist vera að skila fleiri landsmönnum í heimsókn, að sögn Hrafnhildar. Hún kvaðst eiga von á að þess myndi gæta í heimsóknartölum fyrir júlímánuð.
„Við höfum verið að fá um 4.500 gesti á sumri. Okkur sýnist þetta ætla að verða miklu meira í sumar,“ sagði Hrafnhildur. Hún taldi að ef svo fer sem horfir að í sumar geti gestir safnsins jafnvel orðið um sex þúsund.