Skipulagsbreytingar hjá Eimskip

Guðmundur P. Davíðsson, framkvæmdastjóri Eimskips á Íslandi, mun láta af störfum vegna skipulagsbreytinga, eins og segir í tilkynningu. Guðmundur stýrði starfsemi Eimskips á Íslandi sem nú hefur verið skipt niður í tvö svið, Sölu og þjónustu og Eimskip innanlands. Bæði svið heyra beint undir forstjóra og hafa tveir nýir framkvæmdastjórar verið ráðnir yfir hin nýju svið.

Í kjölfar fjárhagslegrar endurskipulagningar er nú unnið að breytingum á stjórnskipulagi félagsins. Markmiðið er að einfalda skipulag, ná fram hagræðingu í rekstri og reka áfram öflugt Eimskip sem er leiðandi í flutningastarfsemi á Norður-Atlantshafi. Starfsemi Eimskips á Íslandi mun í grófum dráttum skiptast í tvær einingar, annars vegar Sölu og þjónustu og hins vegar Eimskip innanlands. Unnið er að frekari breytingum á heildarskipulagi félagsins og mun verða tilkynnt um þær fyrir lok júlímánaðar.

Matthías Matthíasson hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra Sölu og þjónustu á Íslandi. Matthías vinnur nú að því að ljúka ýmsum sérverkefnum, m.a. á skrifstofu Eimskips í Hamborg og kemur að fullu til starfa á Íslandi um miðjan júlí.

Guðmundur Nikulásson mun taka við starfi framkvæmdastjóra Eimskips innanlands og fellur þar undir rekstur á innanlandskerfi félagsins, rekstur Vöruhótels, Flytjanda, vörudreifingar á höfuðborgarsvæðinu, hafnarsvæða á Íslandi og  frysti- og kæligeymslna. Guðmundur hefur starfað hjá Eimskip síðan 1997 og gegnt ýmsum trúnaðar- og stjórnunarstöðum.

Tilkynning Eimskips

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert