Tökur hafnar á Laxdælu Lárusar

Stefán Karl Stefánsson, leikari
Stefán Karl Stefánsson, leikari

Tökur á kvikmyndinni Laxdæla Lárusar hófust í morgun í Búðardal með Stefáni Karli Stefánssyni, Eggerti Þorleifssyni og Ágústu Evu Erlendsdóttur í aðalhlutverkum. Leikstjóri myndarinnar er Ólafur Jóhannesson.

Tökur munu standa yfir 7 vikur í Búðardal og Reykjavík. Laxdæla Lárusar segir frá verkfræðingi í Reykjavík sem er nýfráskilinn. Hann lýgur sig inn í aðstæður til að geta bjargað sveitarfélagi á Vesturlandi frá glötun í örvæntingarfullri tilraun til að finna sjálfan sig.
Leikarahópur myndarinnar samanstendur af mörgum af þekktustu leikurum þjóðarinnar og þeim bregður fyrir í stórum sem smáum hlutverkum.

Helstu leikarar Laxdælu Lárusar eru: Stefán Karl Stefánsson, Ágúst Eva Erlendsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Harpa Arnardóttir, Eggert Þorleifsson, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, Benedikt Erlingsson, Halldóra Geirharðsdóttir, Ingvar E. Sigurðsson, Jóhann G. Jóhannsson, Guðmundur Ólafsson, Nanna Kristín Magnúsdóttir, Gunnar Hansson, Flosi Ólafsson og Magnús Ólafsson.

Ólafur leikstýrði áður Stóra planinu, The Amazing Truth About Queen Raquela og vefþáttunum Circledrawers.
Handritið er skrifað af Ólafi og Hrafnkeli Stefánssyni.
Laxdæla Lárusar Skjaldarsonar er framleidd af Kristínu Andreu Þórðardóttur, Jóhanni G. Jóhannssyni og Ólafi Jóhannessyni.

Ólafur Jóhannesson, leikstjóri
Ólafur Jóhannesson, leikstjóri
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert