Mátaði Landeyjahöfn

Herjólfur við hafnargarðana í Bakkafjöru.
Herjólfur við hafnargarðana í Bakkafjöru. mbl.is/Stefán Sigurðsson

Herjólfur lagði lykkju á leið sína frá Vestmannaeyjum í fyrradag og mátaði innsiglinguna í Landeyjahöfn, að því er Eyjafréttir greina frá. Sigldi Herjólfur alveg inn í hafnarkjaftinn. Leist skipstjórnarmönnum vel á. Dýpið á sandrifinu skammt undan hafnarmynninu var tæpir fjórir metrar.

Sjá má myndir úr vefmyndavél í Bakkafjöru  þegar Herjólfur mátaði höfnina.

Siglingastofnun
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka