Allt tiltækt slökkvilið Brunavarna Árnessýslu og lögregla eru nú á leið að Hótel Valhöll á Þingvöllum. Þá er lið frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins einnig á leið á Þingvöll.
Tilkynnt var um mikinn eld í húsinu upp úr klukkan fjögur og leggur mikinn reyk yfir svæðið.
Eins og sjá má af myndinni skíðlogar í hótelinu.
Búið er að rýma húsnæðið og er ekki vitað um slys á fólki.
Slökkvilið er komið á staðinn en litlar upplýsingar er að hafa enn sem komið er.