Gekk berserksgang í Húsafelli

Frá Borgarnesi.
Frá Borgarnesi. mbl.is/Sæberg

Kona í annarlegu ástandi gekk berserksgang í Húsafelli í nótt og grýtti starfsmenn svæðisins með öllu lauslegu. Ekki er vitað hvað konunni gekk til en hún var flutt til Reykjavíkur þar sem hún svaf úr sér. Á sama tíma týndi ölvaður maður bústað sínum. Erill var hjá lögreglunni í Borgarnesi í nótt.

Lögreglan hafði í nógu að snúast vegna ölvunar og þurfti meðal annars að hafa afskipti af drukknum manni sem hafði týnt bústaðnum sem hann dvaldi í eftir að hafa ráfað út í mýri í norðanverðum Borgarfirðinum.   

Mikil umferð var í umdæmi lögreglunnar í Borgarfirði og þurfti að hafa afskipti af ölvuðum ökumanni, auk þess sem ungt par var tekið á bifreið sem stolið var í Reykjavík í júní. Þau reyndust hafa fíkniefni í fórum sínum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert