Í nýliðnum júnímánuði seldust alls 320 tonn af nautakjöti, sem er 5,9% aukning m.v. júní í fyrra. Undanfarna 12 mánuði nemur salan 3.640 tonnum, sem er 2,1% samdráttur frá árinu á undan. Þetta kemur fram á vef landsambands kúabænda. Innflutningur á nautakjöti dróst verulega saman, fyrstu 5 mánuði þessa árs hafa verið flutt inn 49 tonn af nautakjöti, á móti 197 tonnum á sama tímabili í fyrra.