Icesave gjaldfalli ef Landsvirkjun bregst

Seðlabankinn.
Seðlabankinn. mbl.is/Ómar

Lögfræðingar Seðlabankans gagnrýna Icesave-samninga harðlega í lögfræðiálit sem þeir hafa kynnt þingnefndum. Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV. Lögfræðingarnir  telja að samkvæmt samningnum geti lánið sem tengist Icesave-samningunum og þar með öll erlend lán ríkisins gjaldfallið ef fyrirtæki á borð við Landsvirkjun og Byggðastofnun greiði ekki á gjalddaga.

Á sameiginlegum fundi tveggja þingnefnda í morgun, fjárlaganefndar og efnahags- og skattanefndar, kynntu fulltrúar Seðlabankans greiningu sína á skuldastöðu og skuldaþoli ríkisins í tengslum við Icesave-samninginn. Þá var og lögfræðiálit kynnt. Seðlabankinn óskar þess að tölulegar upplýsingar séu ekki gerðar opinberar strax.

Í lögfræðiálitinu kemur fram að ekki var leitað til lögfræðinga Seðlabankans við samningsgerðina. Þeir hafa því ekki áður gefið álit sitt, hvorki á ríkisábyrgðinni né Icesave-samningunum. Þá segir að ekki verði séð að nein tilvísun sé í samningnum til hinna umsömdu Brussel viðmiða um að taka tillit til hinna erfiðu og fordæmislausu aðstæðna sem Ísland er í og að íslenska ríkið virðist ekki eiga beinlínis rétt á að samningurinn skuli tekinn upp og endursamið.

Þá kemur fram í lögfræðiálitinu að greiði fyrirtæki eins og Landsvirkjun eða Byggðastofnun ekki af lánum sínum hærri en 10 milljón pund á gjalddaga, sem ríkið ábyrgðist, gæti Icesave-lánið og þar með öll erlend lán ríkisins gjaldfallið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert