Ökumaður var fluttur á slysadeild eftir að hann ók bifreið sinni inn í hlið sjúkrabíls í forgangsakstri á gatnamótum Njarðargötu og Hringbrautar nú skömmu fyrir klukkan hálf tvö í dag.
Sjúkrabíllinn valt á hliðina við áreksturinn. Tveir sjúkraflutningamenn voru í honum, en enginn sjúklingur. Þeir virðast að mestu hafa sloppið ómeiddir.