Heildarskuldir þjóðarbúsins eru komnar yfir 200% af vergri þjóðarframleiðslu og fjármálaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, segir að efnahagsástandið sé erfitt og að nauðsynlegt sé að takast á við vandann. Nú er beðið eftir formlegri skýrslu Seðlabanka en hún verður væntanlega kynnt í fyrramálið.