Stofnuð hefur verið Facebook síða þar sem skorað er á Davíð Oddsson, fyrrverandi formann Sjálfstæðisflokksins, að snúa aftur í stjórnmálin. Davíð útilokaði það ekki í þættinum Málefnið sem var sýndur á Skjá einum í gærkvöldi.
Sá sem stofnaði síðuna segist hafa gert það til þess að sýna Davíð að það sé vilji þjóðarinnar að hann snúi aftur í stjórnmálin og hjálpi þar þjóðinni út úr þeim vanda sem hún er í.