Bændasamtökin fagna skýrslu um áhrif ESB-aðildar

mbl.is/Þorkell

Bændasamtökin hafa sent frá sér tilkynningu þar sem því er fagnað að fengist hafi að birta skýrslu sem er tilraun til úttektar á áhrifum ESB-aðildar á íslenskan landbúnað. Skýrslan staðfesti í meginatriðum málflutning og rök samtakanna sem haldið hefur verið fram í ESB-umræðunni síðustu misseri.

Í tilkynningunni segir að Bændasamtökin hafi bent á að skoða þurfi með heildstæðum hætti áhrif aðildar að ESB á byggð, búsetu og atvinnulíf í landinu. Um 10.000 manns á vinnumarkaði starfa við íslenskan landbúnað og úrvinnslu og þjónustu honum tengdum. Í skýrslu Hagfræðistofnunar er ekki gerð tilraun til þess að meta áhrif á þessa þætti en slíka úttekt hlýtur að þurfa að gera áður en ákvörðun er tekin.

Bændasamtökin fagna opinni og upplýstri umræðu og að upplýsingum sé ekki haldið leyndum sem gætu veikt málflutning þeirra sem vilja skilyrðislaust gerast aðilar að ESB. Upphlaup það sem varð í dag á Alþingi vegna málsins sýnir vel að aðildarumsókn að ESB þarf meiri og yfirvegaðri umræðu. Bændasamtökin minna á að þau hafa áður lagt til að báðum fyrirliggjandi þingsályktunartillögum verði hafnað.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert