Rauðri málningu var skvett á hús Bjarna Ármannssonar, athafnamanns og fyrrverandi bankastjóra Glitnis, í nótt. Lögreglu barst tilkynning rétt fyrir klukkan 10 í morgun en ekki er vitað hverjir voru þarna á ferðinni.
Bjarni bætist því í hóp þeirra bankastjórnenda og athafnamanna sem hafa fengið málningarslettur á híbýli sín.