Þrír piltar klifruðu upp á Hallgrímskirkju um klukkan þrjú í nótt. Piltarnir komu niður er lögregla kom á staðinn og kallaði til þeirra.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu er þetta ekki í fyrsta skiptið sem ölvað fólk fer inn á vinnusvæði við kirkjuna og klifrar eftir vinnupöllum upp á turn hennar.
Þannig hafi fólk t.d. nýlega klifrar alveg upp að krossinum en til að komast upp að honum þarf að klifra utan á timbri sem er á turninum vegna viðgerða sem nú standa yfir á kirkjunni.