Stuð á Seyðisfirði

Seyðisfjörður
Seyðisfjörður Árvakur/Steinunn

Erilsamt var hjá lögreglunni á Seyðisfirði í nótt. Þar var hátíðin Lunga haldin og gekk hátíðin ágætlega fyrir sig, að sögn lögreglu. Sumir hátíðargesta voru enn að skemmta sér laust eftir klukkan átta í morgun. Fullt var af fólki í bænum en engin stórvægileg mál komu upp.

Nokkrir fengu vistun um skamma stund hjá lögreglunni til að jafna sig eftir að gleðskapurinn keyrði úr hófi. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert