Skilnefnd Glitnis hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar fjölmiðla um aðkomu erlendra kröfuhafa að Íslandsbanka. Þar segir m.a. að kom i til þess að þessir aðilar eignist bankann að hluta eða öllu mini eignarhald á Íslandsbanka áfram verða að fullu á forræði skilanefndar Glitnis. Það muni því ekki hafa bein áhrif á daglegan rekstur, stjórnun eða umsýslu eigna bankans.
Yfirlýsingin fer í heild hér á eftir:
„Vegna umfjöllunar í fjölmiðlum um aðkomu erlendra kröfuhafa að Íslandsbanka vill skilanefnd Glitnis koma eftirfarandi á framfæri:
Samkvæmt samningi stjórnvalda og Glitnis eiga kröfuhafar í gegnum Glitni möguleika á því að eignast Íslandsbanka að hluta eða öllu leyti. Komi til þess verður eignarhald á Íslandsbanka að fullu á forræði skilanefndar Glitnis. Einstaka kröfuhafar munu ekki hafa bein áhrif á daglegan rekstur, stjórnun eða umsýslu eigna bankans, frekar en almennt gerist í almenningshlutafélögum.
Kröfuhafar Glitnis eru dreifður hópur, þar á meðal bankar og verðbréfasjóðir, sem hefur það að markmiði að fá sem mestar endurheimtur af skuldabréfum sínum í Glitni banka. Þessir aðilar telja verðmæti fólgin í eignarhaldi á Íslandsbanka og er gert ráð fyrir að þeir muni, þegar fram líða stundir, skipa óháða sérfræðinga í bankaviðskiptum í stjórn bankans.
Þetta verður gert í nánu samráði við skilanefnd Glitnis, Fjármálaeftirlitið og stjórnvöld. . Fjármálaeftirlitið metur hæfi aðila til að fara með virkan eignarhlut í fjármálafyrirtækjum sem og hæfi einstaklinga til að taka sæti í stjórnum banka og fjármálafyrirtækja.
Árni Tómasson
formaður skilanefndar Glitnis