Eftir Dag Gunnarsson,
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra segir að þingmenn eigi rétt á að gera upp hug sinn og tjáir sig ekki um ummæli sem höfð eru eftir Lilju Mósesdóttur í hollensku dagblaði í dag.
Í hollenska dagblaðinu Volkskrant segir Lilja Mósesdóttir þingmaður Vinstri grænna um Icesave-samninginn að það geti verið að Íslendingar vilji ná samkomulagi en hún telur að við höfum ekki efni á því.
Í blaðinu kemur fram að niðurstaða málsins sé í raun í höndum þriggja þingmanna VG sem séu á móti samkomulaginu.