Heildarafli íslenskra skipa eykst mjög

Reuters

Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum júnímánuði, metinn á föstu verði, var 55% meiri en í júní 2008. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 10,2% miðað við sama tímabil 2008, sé hann metinn á föstu verði. Aflinn í júní 2009 var 127.595 tonn samanborið við 61.028 tonn í sama mánuði árið áður. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar.

Botnfiskafli jókst um rúm 12.000 tonn frá júní 2008 og nam rúmum 38.000 tonnum. Þar af var þorskaflinn rúm 12.000 tonn, sem var um 5.000 tonnum meira en árið áður. Ýsuaflinn nam 6.000 tonnum sem er  tæpum 900 tonnum meiri afli en í júní 2008. Ufsaaflinn jókst um helming á milli ára og nam um 6.000 tonnum en  2.500 tonn veiddust af karfa, sem er um 900 tonnum minna en í júní 2008.

Afli uppsjávartegunda nam tæpum 84.000 tonnum sem er um 54.000 tonnum meiri afli en í júní 2008. Síldaraflinn jókst milli ára um rúm 17.000 tonn og nam tæpum 45.000 tonnum. 39.000 tonn veiddust af makríl, sem er töluvert meiri afli en í júní 2008 þegar rúm 2.400 tonn voru veidd.

Flatfiskaflinn var rúm 3.700 tonn í júní og jókst um tæp 1.400 tonn frá fyrra ári. Skel- og krabbadýraafli nam 1.314 tonnum samanborið við 2.189 tonna afla í júní 2008.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2007. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert