Orkumálaráðherrar ESB sitja nú á óformlegum fundi í Åre í Svíþjóð, til að ræða græna hagkerfið og bætta orkunýtingu. Til fundarins er boðið ráðherrum EFTA ríkjanna. Iðnaðarráðherra, Katrín Júlíusdóttir, sækir fundinn fyrir hönd Íslands.
Fram kemur í tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu að Katrín hafi lagt áherslu á tvennt í umræðunum um bætta orkunýtingu og þau sóknarfæri út úr efnahagssamdrættinum sem felist í umhverfis- og orkumálum.
Í fyrsta lagi að efla samstarf og rannsóknir á sviði jarðhita enda sameinuðu jarðvarmaver yfirleitt raforkuframleiðslu og hitaveitur og möguleikar á nýtingu væru víða í Evrópu. Auk þess mætti yfirfæra þekkingu til að efla uppbyggingu hitaveita sem Evrópusambandið leggur vaxandi áherslu á.
Í öðru lagi að ívilna fyrirtækjum sem vilja nýta ónýtta umframorku á borð við jarðgufu frá jarðhitaverum og fyrirtækjum sem velja sér staðsetningu gagngert til að nýta endurnýjanlega orku eða draga verulega úr orkuþörf, t.d. með minni kæliþörf, segir í tilkynningunni.
Á morgun verður sameiginlegur fundur með umhverfisráðherrum ESB þar sem græna hagkerfið verður sérstaklega rætt.