Tófur hafa hafa haldið vöku fyrir fólk í sumarbústaðalandinu í Galtarholti í fyrrum Borgarhreppi undanfarið. Skessuhorn segir fjármuni afar takmarkaða hjá sveitarfélaginu Borgarbyggð til að halda uppi nauðsynlegri grenjavinnslu.
„Öllu verra en svefnleysi einstaka sumardvalargests er þó þegar lömb verða fyrir barðinu á tófunni. Meðfylgjandi mynd tók Gunnar Bjarnason bóndi á Hurðarbaki í Reykholtsdal af lambi sem kom heim að bæ á Hurðabaki fyrir skömmu og hafði verið bitið,“ segir á vef Skessuhorns.
„Ekki leikur nokkur vafi á að þetta er af völdum tófu. Lambið hefur sloppið með skrekkinn en er þó illa farið,“ segir Snorri Jóhannesson grenjaskytta í uppsveitum Borgarfjarðar í samtali við Skessuhorn. Hann segir að verði slakað enn frekar á refaveiðum, eða þær ekki efldar aftur, megi búast við að sjón sem þessi verði algeng næstu misserin.
„Þá verður ástandið aftur líkt og var hér fyrr á árum,” segir Snorri. Hann segir að þekkt greni á þessum slóðum hafi verið leituð í vor og sum tvívegis vegna þess að tófur sáust á svæðinu. „Það er greinilega til greni sem ekki er vitað um enda hafa sést stálpaðir yrðlingar á þessum slóðum, þó ekki hafi enn tekist að vinna þá.“