Hægt að dreifa skattgreiðslum yfir lengri tíma

Álagning skatta á einstaklinga vegna tekna á síðasta ári verður gerð opinber fimmtudaginn 30. júlí næstkomandi. Álagningarseðlar verða þá sendir út og einnig birtir á vef skattstjóra, skattur.is. Frá þeim tíma munu álagningarskrár einnig liggja frammi tímabundið. Fram að því verða engar tölur gefnar upp um heildarálagningu, samkvæmt svörum frá embætti skattstjóra.

Embætti tollstjóra og aðrir innheimtumenn ríkissjóðs, yfirleitt sýslumannsembættin á landsbyggðinni, eru undirbúnir því að greiðendur skatta vilji dreifa greiðslunum á lengri tíma en venja hefur verið.

Á vef tollstjóra, tollur.is, hafa verið birtar upplýsingar um álagningu opinberra gjalda. Þar segir m.a. að ef launþegi sem skuldar skatta vill lækka þá fjárhæð sem haldið er eftir af launagreiðanda, þá hafi hann möguleika á að gera greiðsluáætlun hjá tollstjóra eða öðrum innheimtumönnum. Er skatturinn þá greiddur upp á lengri tíma með léttari greiðslubyrði mánaðarlega, en jafnframt er bent á að það hafi í för með sér aukinn vaxtakostnað þegar upp sé staðið.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert