Keyrði nánast á höfuð tjaldbúa

Lögregla við umferðareftirlit. Mynd úr safni.
Lögregla við umferðareftirlit. Mynd úr safni.

Litlu mátti muna að slys yrði þegar ölvaður ökumaður ók inn á tjaldsvæði við Garðskagavita í Garði í nótt og staðnæmdist bókstaflega á tjaldi eins tjaldbúans. Sá vaknaði upp við bifreiðina þegar dekkið var um 20 sm. frá höfði hans.

Ökumaðurinn og farþegi bílsins voru báðir handteknir skömmu síðar af lögreglunni á Suðurnesjum og gistu fangageymslur það sem eftir lifði nætur. Farþeginn, sem var ölvaður, er grunaður um að hafa ekið bifreiðinni frá tjalsvæðinu að sögn lögreglu. Þeir voru yfirheyrðir þegar áfengisvíman var runnin af þeim.

Í dag hefur lögreglan á Suðurnesjum svo haft í nógu að snúast því sjö ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni. Sá sem hraðast ók mældist á 141 km/klst en hann greiddi sektina, 67.500 kr á staðnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka