Innbrotum í bíla hefur fjölgað mikið á milli ára samkvæmt tjónaskýrslum Sjóvá. Það sem af er þessu ári hefur Sjóvá verið tilkynnt um 111 innbrot í bíla og tjón að verðmæti 9.435.695 krónum en allt árið 2008 var Sjóvá tilkynnt um 119 innbrot með tjónum sem námu 9.421.388 krónum.
Fram kemur í fréttatilkynningu Forvarnarhússins að þjófar brjótast inn í bíla allstaðar, jafnvel í innkeyrslum og bílageymslum. Þá segir þar að sérstök ástæða sé til að benda fólki á mikla tíðni þjófnaða úr bílum á bílastæði við Esjuna og öðrum útivistarsvæðum þar sem fólk geymi oft verðmæti sín í bílnum á meðan það nýtur útivistar.
Einnig þekkist að þjófar fari í bíla við kirkjur til að ná í skírnar- og brúðargjafir.
Forvarnahúsið minnir bílaeigendur á eftirfarandi ráð:· Ekki skilja neitt eftir í bílnum. Jafnvel gömul kápa eða tómur plast poki gæti freistað þjóf.
· Læsið alltaf bílnum og lokið öllum gluggum og sóllúgunni.
· Kveikið á þjófavörninni ef hún er í bílnum.
· Aldrei skilja lyklana eftir í bílnum.
· Farðu aldrei frá bílnum með hann í gangi – ekki einu sinni í innkeyrslunni.
· Legðu bílnum á öruggum stað, helst þar sem er mikil lýsing og umferð.
· Ekki merkja bílinn með límmiðum um hljómflutningsgræjur eða önnur tæki í bílnum.