Vatn er nú tekið að flæða úr Kelduárlóni inn í Folavatn, að því er fram kemur á vef Landsvirkjunar. Rennsli Grjótár og Kelduár hefur verið allmikið vegna rigninga undanfarna daga og í kjölfarið fór að flæða inn í Folavatn.
Kelduárlón er um 8 ferkílómetrar með 60 gígalítra miðlunargetu og yfirfallshæð í 669 metra yfir sjávarmáli. Folavatn er tæplega einn ferkílómetri að flatarmáli og um sex metrum undir hæstu vatnshæð Kelduárlóns.