Fangageymslur eru nú fullar hjá Lögreglunni í Vestmannaeyjum. Sex þjóðhátíðargestir hafast þar við vegna ölvunar en þeir voru til öðrum til ama í Herjólfsdal og voru því fjarlægðir.
Að öðru leyti var stóráfallalaus í Eyjum en þó erilsöm eins og verða vill um verslunarmannahelgar. Nokkuð rigndi á fjórða tímanum og ekki laust við að drægi af gestum við það að sögn lögreglu.