Allt með kyrrum kjörum á Akureyri

Frá Ráðhústorgi á Akureyri.
Frá Ráðhústorgi á Akureyri. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Tvö umferðarslys urðu í nótt og undir morgun í umdæmi lögreglu Akureyrar. Annars vegar missti ökumaður stjórn á bifreið sinni á Ólafsfjarðarvegi með þeim afleiðingum að hann hafnaði utan vegar og hins vegar ók maður á ljósastaur við Krossanesbraut. Engin slys urðu á fólki. Að öðru leyti var nóttin sérstaklega róleg á Akureyri.

Skemmtistaðir lokuðu klukkan fimm í morgun á Akureyri og sagði varðstjóri að fólk hefði verið að týnast heim vel fram á morgun. Lítið sem ekkert ónæði hefði þó verið af fólkinu. Fangaklefar eru tómir og engar líkamsárásir voru tilkynntar - eða þaðan af verra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert