Brúnegg: Frétt um verðhækkun röng

mbl.is/Kristinn

Neytendasamtökin hafa dregið til baka frétt þess efnis að framleiðandi vistvænna brúneggja hafi tilkynnt verslunum um 20% verðhækkun frá og með 1. ágúst. Engin verðhækkun tók gildi 1. ágúst og verðhækkun er ekki fyrirhuguð.

Í leiðréttingu sem birt er á vef Neytendasamtakanna segir að upplýsingar um verðhækkun hafi reynst rangar. Jafnframt er beðist velvirðingar á mistökunum.

Samkvæmt könnun Neytendasamtakanna er allt að þriðjungs verðmunur er brúneggjum

Neytendasamtökin könnuðu fyrir helgi verð á 10 eggja bakka af vistvænum brúneggjum. Mesti verðmunur reyndist vera 33%. Lægsta verðið reyndist vera í Bónus en það hæsta í Melabúðinni.

Neytendasamtökin taka fram í könnun sinni að verð er fengið í gegnum síma eða á heimasíðu fyrirtækja. Þá er tekið fram að smákannanir eru ekki alltaf tæmandi, heldur gefa þær hugmyndir um markaðinn.

Leiðrétting Neytendasamtakanna:

„Við gerð ofangreindrar könnunar, sem birtist hér á vefnum hinn 30. júlí sl., fengu Neytendasamtökin þær upplýsingar að hinn 1. ágúst væri boðuð 20% verðhækkun á þessari vöru frá framleiðanda. Þessar upplýsingar reyndust rangar og brúnegg hækkuðu ekki um sl. mánaðamót né er fyrirhuguð hækkun á þeim frá framleiðanda á næstunni. Er hér með beðist velvirðingar á þessum mistökum.“

Vefsíða Neytendasamtakanna

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert